Auglýsing

Íbúarnir

Ingólfur Friđriksson og Sigríđur Hulda Stefánsdóttir heita hjón. Hann er meistaranemi í lögfrćđi viđ Háskólann á Akureyri og starfsmađur utanríkisráđuneytisins. Hún stundar nám í sjúkraţjálfun í Esbjerg í Danmörku. Ţau dreymir um fallegt framtíđarheimili.

Innskráningar kubbur

Nú liggja Danir í ţví!

20. desember 2007 klukkan 16:01
Það að vera íslendingur í útlöndum á jólunum getur reynst erfitt. Það að finna réttu jóla stemninguna, bragðið, hefðirnar....
Blandan mín og blandan þín Egils malt og appelsín.
Danir eru sumsé búinir að redda þessu algerlega, maltið hefur reyndar upphaflega verið frá þeim komið en nú hefur þeim loksins tekist að brugga appelsín.
Við erum s.s búin að smakka og þó að það megi ekki segja svona þá er þetta bara alveg eins. Við erum meira að segja með íslenskt appelsín og malt til samanburðar.

Klikkið á linkinn til að sjá myndina
Keyptum okkur svo saltfisk til að borða á Þorláksmessu, fyrsta skiptið í all mörg ár sem ekki verður skóflað í sig skötu. 
Fiskisalinn varð ansi forvitin þegar við spurðum um saltfisk, enda er þetta bara til á bakvið... maður þarf að vita af þessu, Ingó sagði þá að við værum Íslendingar og þá spurði hún (fiskisalinn) hvort við vildum þá ekki saltaða íslenska síld. við horðum hvort á annað og hristum svo höfuðið. Komumst svo að því að þetta þykir dönum algert sælgæti. Þeir borða venjulega norska síld en ef það á að gera vel við sig þá er splæst í ekta íslenska síld. Hún varð voðalega hissa þegar við sögðum að Íslendingar borðuðu ekki svona sjálfir og að við fytjuðum upp á nefið ... við vorum samt ekkert að segja að þetta hafi verið notað sem skeppnufóður heima þegar við vorum yngri. Hún hafði s.s heyrt um einn kollengan sem fór til Íslands og fann þetta bara hvergi. Svo sem þá hef ég barasta aldrei séð saltaða síld til sölu á klakanum, kannski þess vegna sem við borðum þetta ekki.
Mér finnst síld reyndar voðalega góð fersk í bollur (tek það fram að Jónas frændi stal stundum handa mér ferskri síld þegar vel veiddist enda var þetta allt sent úr landi...) eða marineruð nammmmm!
Frú Sigríđur
3 athugasemdir

Bćjarferđ og rúgbrauđ

18. desember 2007 klukkan 19:22
Svosem ekkert nýtt að frétta þannig að það er sennilega best að rifja upp eitthvað gamalt. Ég skrapp í bæinn í dag og var einn á ferð. Á leiðinni í strætónum rifjaði ég upp að ég hef sennilega ekki verið einn niður á göngugötu  í Esbjerg síðan ég lagði skóbúðina í rúst með harðhausnum mínum fyrr á árinu.

Helsta markmið ferðarinnar var að kaupa efni í rúgbrauð (íslenskt)  en hún móðir mín sagði mér uppskriftina í gær. Ég fékk öll nauðsynleg hráefni í þennan aflgjafa óæðri endans og stefni því á að leggja í deig í fyrramálið. Svo er bara að bíða - tekur 12 tíma í bakstri. Þá mega Danirnir sko fara að passa sig.
Herra Ingólfur
1 athugasemd

Jólafrí, ferđalag og sćlan í Esbjerg

17. desember 2007 klukkan 12:01
Ég er komin í jólafrí, og sit nú í sælunni hjá henni Siggu minni hérna í Esbjerg. Ferðalagið gékk ósköp vel. Tók eftirmiðdagsvélina á Kaupmannahöfn á laugardaginn. Óvenjumargir Íslendingar voru í vélinni á leið til Danmerkur frá Genf og ætluðu þau að ná vélinni heim til Íslands sem fara átti skömmu eftir kom til Kastrup. Þeim varð ekki kápan úr því klæðinu - tveggja tíma seinkum - og ein með ungabarn. Það var ekki fyrir að fara  sömu stundvísi hjá Icelandair og hjá Danske Statsbaner (DSB) -fáknum vængjaða spenntum fyrir vagninum sem dró mig yfir þvera og endilanga  Danmörku í faðm minnar heittelskuðu. 

Tíminn síðan ég kom hefur að mestu farið í að versla og að koma jólakortum og jólapökkum í póst - vonandi skilar þetta sér allt fyrir jól.
Herra Ingólfur
Engin athugasemd

já já

09. desember 2007 klukkan 19:48
Skildist það á Benna að ég ætti að skella heimilisfanginu mínu hérna inn ... fyrir fólk sem endilega langar að senda okkur eitthvað.... það er s.s

Sigríður Hulda Stefánsdóttir (ef þið munið ekki hvað ég heiti (skrifa mitt nafn ef Ingó er skrifaður fyrir þessu fáum við þetta ekki (hans nafn er nefninilega ekki á póstkassanum)))
Stenkrogen 17-1-8 (sem þýðir íbúð 17, 1 hæð, hurð 8)
6705 Esbjerg Ø
Danmark

Svo langar mig að spyrja ykkur ráða, þannig er mál með vexti að ég er að fara í julefrokost á föstudaginn og á að koma með kartöflusalat og ég er sjálf ekkert æst í svoleiðis salat þannig að nú vantar mig skothelda uppskrift ok.... kommentið plíís
Var að leita á netin og það eru ca. milljón mismunandi uppskriftir.
Þetta er s.s danskt jólahlaðborð.. fullt af rúgbrauði síld og skrölluðum gulrótum... ekkert voðalega hrædd um að borða yfir mig.... en plís komið með góða uppskrift handa mér.
Frú Sigríđur
5 athugasemdir

afmćliskveđja

08. desember 2007 klukkan 08:34
Í dag er ansi merkilegur dagur fyrir margar sakir:

- Það er laugardagur!
- John Lennon dó þennan dag fyrir 27 árum
- þennan dag, einnig fyrir 27 árum, fæddist hún Hjördís Sigríður. 
- föðursystir mín hún Ásdís á einnig afmæli í dag
- það eru sko fleiri sem eiga afmæli... sinead o´connor, teri hatcher, kim basinger, jim morrison.................og bara fullt af fólki!

til hamingju með afmælið allir, þá sérstaklega Hjördís og Ásdís :D
Frú Sigríđur
1 athugasemd

Jólin jólin allllssstađar...

05. desember 2007 klukkan 20:04
Fékk pakka að heimann í vikunni, laufabrauð, konfekt, appelsín, harðfisk og jólapakka. 2 af jólapökkunum átti ég að opna strax því þeir innihéldu jólaskraut. Aðventu krans frá syss og Reyni og svo bútasaums mynd frá mömmu geggjað flott Takk fyrir mig ;) 
Það reyndist mér erfiðara en ég bjóst við að opna pakkann, gerði mér núna almennilega grein fyrir því að ég væri ekkert að fara heim á næstunni sat bara og skældi. Fyrsta skiptið sem heimþráin lætur á sér kræla, en ég hlakka samt rosalega til að eyða jólunum hérna með mínum manni.

Sit annars bara hér og get ekki einbeitt mér... verð að nota tíman áður en Ingó kemur..... ekki nema 10 dagar Vá hvað ég hlakka til að fá hann til mín :D

Svo eru smá breytingar á vinnuplönunum hjá Ingó.. en hann verður að fá að segja frá því sjálfur... ég veit ekkert hvort það má eins og er hihih

Takk fyrir pakkana elsku fjölskylda, sakna ykkar óhóflega eins og er, elska ykkur.
kv. sigga
Frú Sigríđur
1 athugasemd

Anatomisk insitut odense

03. desember 2007 klukkan 20:18

Í dag skelltum við (bekkurinn) okkur til Odense, á anatomisk institut. Vorum s.s að skoða niður bútuð lík sem eru búin að liggja í formalíni í dálítinn tíma. Fólk var mis spennt yfir þessu og það voru 2 stelpurnar sem þoldu ekki lyktina og fóru út. Skil þær reyndar, lyktin var nú ekkert geðsleg.

Mér leist nú ekkert á þetta fyrst því þegar við komum inn þá blasti við okkur hálfur maður liggjandi þarna á borðinu.

Við vorum samt sammála um það að þetta hefði verið allt í lagi þegar við vorum bara að skoða fótleggina og handleggina en um leið og höfuðið var fast við þá varð þetta undarlegt.

Eitt er víst að mig langar ekki í soðið kjöt á næstunni þá sérstaklega ekki svínakjöt, hér verður bara kjúlli og fiskur í matinn fram að jólum!!

Frú Sigríđur
1 athugasemd

Af erítresku eldhúsi og matarlykt um miđja nótt

02. desember 2007 klukkan 20:23

Á föstudagskvöldið síðasta dobblaði ég nokkra vinnufélagi og vini hér í Genf með mér í óvissuferð út að borða. Fyrir valinu varð erítreski staðurinn Gazelle D'or - eða "gyllta gassellan", en ég hef verið áhugasamur um að prufa þetta "eldhús" í nokkurn tíma, þar sem norður- og austur-afrísk matargerðarlist er eitthvað sem mig langar að kynna mér betur. Staðurinn var óskum huggulegur þegar inn var komið og við sátum eins og í strákofa, með góðum gluggum. Tónlistin var sennilega frá fyrirheitna landinu - Erítreu. Maturinn var borin fram á stóru fati, sem var alsett af pönnukökum (nokkuð eins og íslenskar nema aðeins þykkari og ósætar). Kjöti og öðru góðgæti var svo raðað ofan á pönnukökurnar á fatinu svo þetta myndaði heilmikla krás. Þá var heldur ekkert eftir en að rífa sér svolitla pjötlu af pönnukökunum og næla sér í bita, enda engin hnífapör í boði utan guðsgaflanna! Keimurinn sérstakur, en hafði þó skyldleika við norður-afrískt og jafnvel indverskt. Eftir góða máltíð og handþvott fórum við svo södd og sæl af vettvangi, og ég reynslunni ríkari, enda sjoppufæði (svosem hinn holli skyndibiti pylsan) eini maturinn sem ég hef borðað með höndunum fram til þessa.

Um miðja nóttina eftir er mér kippt úr draumalandinu af sérkennilegri lykt. Svona eins og matarlykt. "Hver getur verið að elda á þessum tíma?!", hugsa ég með mér forviða af hneykslun. En þegar svefndofanum léttir áttaði ég mig á því hvers kyns var - ég hafði einfaldlega sofið með hendina sem ég notaðist til að matast á koddanum  framan við nefið á mér! Handþvotturinn hafði mátt sín lítils gagnvart velkrydduðum krásunum fyrr um kvöldið. Ekki kvartaði ég - færði raunar hendina aðeins nær og vonaðist til þess að sofna sem fyrst, vongóður um veislu í draumalandinu!

Herra Ingólfur
1 athugasemd

1.des!

01. desember 2007 klukkan 20:57
Fullveldisdagur íslendinga, hef aldrei tengt þennan dag neitt sérstaklega við sjálfstæði. Meira það að í menntaskóla var svaka partí og fyllerí bara gaman já og að sjálfsögðu það að einn félagi á afmæi. Gaman að fá frí í skóla á afmælisdaginn. Reyndar langt síðan ég hef séð félagann enda hann orðin heimsfrægur.... 
Elsku Magni til hamingju með afmælið!

Íslendingar til hamingju með daginn!
Frú Sigríđur
Engin athugasemd

gaman!!

29. nóvember 2007 klukkan 19:17
Mér finnst fyndið þegar verið er að tala um neyðarlög Musharraf forseta Pakistan  og Bogi fréttamaður talar svo hratt að neyðarlög kemur út sem neyðarleg..... en það er bara ég!

Sá Kollu Lindu í fréttunum, það gladdi mig ógurlega!

það fer óstjórnlega í taugarnar á mér að stundum getur maður ekki horft á fréttirnar hjá RUV og stöð 2 hikstar bara.....

Létt bylgjan á netinu er að bjarga mér algerlega með jólaskapið, þeir spila svo mikið af jólalögum :D Þar sem ég er ekki með jóladiskana mína hérna og allt sem ég átti á gömlu tölvunni er bara ennþá þar... og ekki komið inn á þessa :(

Ég er svo sjálfbjarga að það er ekkert venjulegt.... Eldhúsvaskurinn lak, hringdi í pabba til að spyrja hvað ég gæti notað í staðan fyrir ónýtu pakkninguna, honum fannst þetta hálf kjánalegt... en mín reddaði þessu bara með eldhúsfilmu... vita wrap hefur sko margþættann tilgang... 



Frú Sigríđur
Engin athugasemd