22. maí 2008 klukkan 14:05
Ég er búin að komast að því hvað gerir launamun kynjanna dálítið athyglisverðann, las frétt á visir.is og sá að laun karla eru reiknuð í miljónum en kvenna í þúsundum....... hér er brot úr fréttinni:
Á eftir Degi kemur Gísli Marteinn Baldursson, borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins, með 2,4 milljóna króna ferðakostnað, þar á eftir Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, oddviti sjálfstæðismanna, með 1,9 milljónir rúmar og svo Þorbjörg Helga Vigfúsdóttir, borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins, með 1400 þúsund krónur.
Kjartan Magnússon, borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins, er í fimmta sæti með ferðakostnað upp á tæpar 1,2 milljónir króna sem er nánast sama upphæð og Björk Vilhelmsdóttir, borgarfulltrúi Samfylkingarinnar, er með.
Stórmerkileg uppgvötun þetta, ik?
ég er sko að bíða eftir að Ingó bloggi. ég á að vera að lesa undir próf, altså.
Frú Sigríđur
15. maí 2008 klukkan 16:30
Jæja.... búin að pakka er að bíða eftir að komast af stað til Billund þar sem ég gisti í nótt og svo er það flug kl 6:05 og komin til Lon og don kl 6:40.
Ingó kemur svo klukkutíma seinna ásamt Kim og Kathi (Þjóðverjunum...) og svo verður reynt að vekja Ben (bretann) og svo verður túristast eins og vindurinn..ohhhh hvað ég hlakka til.
Kem svo heim á sunnudaginn, er ekki alveg viss hvort ég kemst alla leið til Esbjerg samdægurs en já læt vita af mér seinna
Frú Sigríđur
06. maí 2008 klukkan 21:10
Jú jú Syss á afmæli í dag.
Þorgerður til hamingju með daginn (í fjórða skiptið í dag).
Ingó var hjá mér í stuttri heimsókn um helgina, svona pínu óvænt, hann var nebbblega að fara á fund til Oslo og fékk millilenda hjá mér ... hhihih
Ekkert smá gott að fá hann í heimsókn með svona stuttu millibili, gerir lífið aðeins auðveldara. Svo hittumst við aftur eftir 2 vikur í London úúúúúú hvað ég hlakka til.
Frú Sigríđur
27. apríl 2008 klukkan 03:54
Úff... var að skreiðast heim ..og klukkan er 6:05 (klukkan hja bloggar.is er bandvitlaus). ætli það sé ekki best að reyna að ná sér í nokkura tíma svefn áður en maður þarf að fara á fætur aftur.
Kom reyndar heim kl 4 en þegar við Eydna komum heim tók Andreas ekki annað í mál en að við borðuðum morgunmat.... beikon og egg.... svo auðvita var það singstar á eftir.... ekki viss að nágranarnir séu sáttir, ég gat ekki meira og skreiddist upp í mína íbúð en Eydna og norsararnir eru enn syngjandi hérna á neðri hæðinni.....
Held samt að ég sé orðin of gömul í svona djamm langt fram eftir morgni.
góðann dag!
Frú Sigríđur
25. apríl 2008 klukkan 06:24
Eðvald föðurbróðir a.k.a. Deddi frændi á afmæli í dag, 65 ára.
Í gær átti Davíð Arnar afmæli 28 ára kallinn.
Til hamingju með þetta;)
Frú Sigríđur
22. apríl 2008 klukkan 17:06
Stóri bróðir minn hann Benni á afmæli í dag 35 ára gamall kallinn. Búin að senda honum sms (já og litlu syss, hún man aldrei afmælis daga þannig að ég læt hana vita) og þannig að þetta er kv. nr. 2 í dag hihi.
Benni minn vona að dagurinn hafi verið eftir minnilegur á einhvern skemmtilegann hátt, til lykke med fødselsdagen.
Svo er það líka bróðursonurinn, a.k.a. litli bróðir sem átti afmæli þann 20 apríl og varð 15 ára. Jón Gunnar til hamingju (aftur... sendi honum sko líka sms)
Ingó er farinn og ég sit hérna barasta aaallllein, alltaf voðalega leiðinilegt þegar hann fer. Við erum samt búin að hafa það voðalega huggulegt, veðrið búið að vera með betra móti síðustu vikuna, sól og hiti (samt ekki eins og á norður og austurlandi...17°C) en samt nægilega hlýtt í skjólinu til að ná sér í smá lit....aðalega rautt nef hihih.
En ég vildi nú bara láta vita af mér, ég og Eydna situm núna yfir bókunum... ekki seinna vænna að byrja próflestur puuuha
Góðar stundir....samogþeigið
Frú Sigríđur
14. apríl 2008 klukkan 08:02
Ljái mér hver sem vill en ég hef lengi haft það á tilfinningunni að fólki finnist ég svolítið sérstakur. Geri ekki ráð fyrir að úr því hafi dregið þegar ég ákvað að taka mér ferð með lest frá Genf í Sviss til Esbjerg í Danmörku - alls 15 tíma ferðalag. En í heimi gengisrýrðrar krónu leggur maður ýmislegt á sig fyrir ástina - hefði jafnvel farið þetta á fingrinum ef á hefði þurft að halda. Ekki það að ég geti kvartað undan ferðalaginu - var heppin með sessunauta. Erfiðast var að drepa tímann. Stökk aðeins út í Basel og sá markaðstorgið. Sá síðan Frankfurt, Götting og Hannover útum gluggann. Hafði aðeins lengri tíma í Neumunster í Norður-Þýskalandi. Tók tali Þjóðverja nokkurn sem beið eftir lestinni til Flensborgar á sama tíma og ég - var líka að fara að heimsækja konuna. Honum fannst fínt að búa í Neumunster. Að vísu væri þar hæsta glæpatíðni í Þýskalandi miðað við íbúafjölda, mikið vandamál með innflytjendur og þarna væru rætur ný-nasismans. Þetta ræddi hann svona líka opinskátt. Ég verð að viðurkenna að mér varð rórra þegar ég var komin uppí lest og á leið útúr bænum. Fer kannski bara í gegnum Hamborg næst.
Ég semsé kom til Esbjerg föstudagskvöldið og hef notið samvistanna við eiginkonuna síðan. Verð hérna fram á næsta mánudag. Á laugardaginn kíktum við aðeins í "miðbæinn" og í gær fórum við í heljarinnar strandgöngu. Það er notalegt að heyra dönsku á nýjan leik og gott að finna að maður skilur enn og getur gert sig skiljanlegan - þrátt fyrir einstaka frönskuslettu. Veðrið hefur líka verið ágætt, 10 gráður eða svo og sól stærstan hluta dagsins. Ekki mikils að sakna frá Genf varðandi það - enda snjóaði þar síðasta mánudag og það hefur að ég held rignt síðan.
Herra Ingólfur
13. apríl 2008 klukkan 08:04
Stundum tjah eða oftast þá dreymir mig eintóma vitleysu til dæmis í nótt dreymdi mig að:
- Hafrún (sem vinnur með Ingó) hefði keypt sér þrjá litla ísbirni. Eins og ekkert sér sjálfsagðara eða hvað. þeim og ísunum (hundarnir hennar) kom bara voða vel saman...
- Gústi Óla var að gera frétt um bakaðar baunir og hvaða áhrif útrunnar baunir hefðu á Ásgrím Inga. Þetta átti sér stað á hlaðinu á Þrándó og ég var eitthvað að aðstoða þá við þessa frétt, hljóp inn og þar var Þorgerður systir að kenna ömmu að spila tölvuleik......æi veit ekki.
Frú Sigríđur
08. apríl 2008 klukkan 17:45
Það snjóar í Genf í dag. Festir að vísu ekki á jörðu en snjór engu að síður. Ég er persónulega orðin langeygður eftir vorinu. Býð þess dags í ofvæni að geta tekið upp léttklæðnað og lagt sokkunum.
Annars er það helst að frétta að ég er að fara í heimsókn til hennar Siggu minnar á föstudaginn kemur, og verð hjá henni í 10 daga. Geri ekki ráð fyrir því að ég þurfti að taka með mér léttklæðnað þangað þar sem vorið er sennilega ekki komið í Esbjerg.
Herra Ingólfur
01. apríl 2008 klukkan 21:54
Ég skil ekki alveg!
Núna eru massa mótmæli í gangi á Íslandi allt í lagi með það að mótmæla þessu geðsýkis bensín og olíu verði en er það bara ég sem undra mig á því að fólk sé að mótmæla verði á eldsneyti með því að nota eldsneyti og það meira af því en þeir myndu annars gera. Hverjir græða á þessu jú jú olíufyrirtækin og ríkið....
Já og annað, þeir sem eru að mótmæla þessu eru fólk á STÓRUM bílum = bensín/dísel. hákar, sem rúnta um á götum borga og bæja. Hvað gerist þegar bíll gengur í hægagangi jú jú, brennir meiru sem þýðir meira eldsneyti og meiri mengun.
Farið nú að gera eitthvað annað... hætta að keyra (flutningabílstjórar í verkfall), nota almenningssamgöngur (þar sem það er hægt), ganga, hjóla (t.d á Egilsstöðum, bærinn er nú ekki það stór) Mótmælið með því að sniðganga vöruna...... annars gerist ekkert! (vill ég meina).
PS. Las frétt um hæga umferð á Egilsstaðanesinu.... er það eitthvað nýtt, rúnturinn ;)
Frú Sigríđur